Heppnir krakkar geta átt von á að fá bíómiða á Disneymyndina Atlantis, sem
verður frumsýnd í Sambíóunum á annan í jólum! Dregið verður úr nöfnum
Æskulínufélaga sem eiga 1000 kr. eða meira á Æskulínubók þann 15.
desember. Nöfn vinningshafa verða birt á Krakkabankanum og verða
bíómiðarnir sendir heim. Einnig geta Netklúbbsfélagar átt von á glaðningi,
því 50 heppnir fá miða fyrir tvo á Atlantis.