Komið að krakkagolfinu!
26.06.2002

Golfdagur Æskulínunnar og GSÍ verður haldinn í Laugardalnum sunnudaginn 30. júní n.k., á túninu milli Suðurlandsbrautar og Fjölskyldu- og Húsdýragarðsins. Golfþrautir verða fyrir byrjendur sem lengra komna og hefjast þær kl. 13.00.

Allir krakkar á aldrinum 6-11 ára geta tekið þátt í golfþrautum.  Hægt er að fá golfkylfur lánaðar á staðnum.

Ekki þarf að skrá þátttöku í golfþrautunum – allir sem vilja taka þátt eru velkomnir í Laugardalinn á sunnudaginn!

  • Golf fyrir 6-11 ára - golfþrautir
  • Glaðningur frá Æskulínunni
  • Frítt inn í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn  - Aðgöngumiðum verður útdeilt á svæðinu
  • Ís frá Kjörís að golfþrautunum loknum

Hlökkum til að sjá ykkur í Laugardalnum á sunnudaginn!