Komdu með út í geim!
 

Spurt og svarað um Orkuátakið
01.10.2003

Orkuátakið 2003 er hafið og geta krakkar nú skráð árangurinn í Orkubókina á Netinu. Smellið á "Opna bókina" hér á forsíðu vefsins. Geysilegur áhugi er á Orkuátakinu, það skynjum við hér hjá Krakkabankanum. Heimsóknir á vefinn hafa margfaldast undanfarna daga og ný met slegin dag eftir dag. Útvarp Latibær á Netinu hefur einnig vakið mikla hrifningu, ekki síst hjá krökkum á landsbyggðinni og einnig meðal íslenskra barna sem búa erlendis. Ýmsar spurningar vakna hjá foreldrum og krökkunum um átakið og reynum við eftir bestu getu að svara þeim. Við erum byrjuð að taka saman svör við helstu spurningum sem okkur berast og birtum þær á Netinu.

Nánari upplýsingar um Orkuátakið og Orkubókina