Komdu með út í geim!
 

Topp 10 listinn: Krakkar á Höfn með forystuna
07.10.2003

Vel á annað þúsund krakkar hafa skráð árangur sinn í Orkuátakinu hér á Krakkabankanum og koma þau alls staðar af landinu. Eins og við mátti búast eru flestir þátttakendur frá Reykjavík en síðan koma Akureyringar og Kópavogsbúar. Hæsta meðalskorið (heildarfjöldi stiga deilt með fjölda þátttakenda) er hjá krökkunum á Höfn í Hornafirði. Síðan kemur Vopnafjarðarhreppur og í þriðja sæti eru krakkarnir í Snæfellsbæ. Við birtum í fyrsta skipti topp 10 lista átaksins.