Komdu með út í geim!
 

Netklúbbur KB Krakka býður í bíó, 2 frábærar myndir
13.02.2006

Allir KB Krakkar sem eru skráðir í Netklúbb KB Krakka fara í pott og geta átt möguleika á að vinna bíómiða eða skemmtilegt dót. Netklúbbur KB banka býður í bíó á tvær skemmtilegar fjölskyldumyndir; Bamba 2 og Nanny McPhee

Nanny McPhee
Þriðjudaginn 21.febrúar drögum við út 175 miða fyrir tvo á Nanny McPhee í Laugarásbíó á sýninguna kl. 12:00 sunnudaginn 26. febrúar. Miðinn gildir eingöngu á þessa sýningu.

Þann 28.febrúar munum við síðan draga aðra 175 miða fyrir tvo á Nanny McPhee sem gilda laugardaginn 4. mars kl 12:00.

Einnig munum við draga út skemmtilegt dót tengt myndinni; pakpoka fullan af leyndardómsfullu dóti, skemmtilegan litakassa, flugdreka og plaköt.

Bambi 2
Fimmtudaginn 23. febrúar drögum við út 450 vinninga fyrir heppna KB Krakka á Bamba 2. Miðinn er opinn og gildir á Bamba 2 á meðan á sýningum stendur í bíósölum Sambíóa.

Einnig drögum við út fallega spilastokka með Bamba myndum og Bamba límmiða- og litabækur.

Netklúbbur KB Krakka
Ef þið eruð ekki nú þegar skráð í Netklúbb KB Krakka, skráið ykkur og þið getið átt von á vinningi: