Spilaðu KB Krakkaleiki hér
 

Vertu með í Bílaleik
20.06.2006

Hér á Krakkabanki.is er nú hægt að taka þátt í netleik í tengslum við kvikmyndina Bílar sem hefst í 21.júní. Dregið verður úr 500 vinningum þann 4.júli og verða vinningarnir sendir heim til vinningshafanna. 500 heppnir KB Krakkar vinna bíómiða á myndina Bílar eða annan varning tengt þessari skemmtilegu fjölskyldumynd.

Bílar
Myndin fjallar um bílinn “Lightning McQueen” sem langar að spreyta sig í kappaksturskeppni en bíllinn er mjög montinn og kokhraustur og á eftir læra sína lexíu á löngu bílaferðalagi sínu.

Í Vatnskassavin snýst allt um bíla og þá meinum við allt. Bærinn er reyndar í dálítilli lægð eftir að nýja hraðbrautin var lögð ekki svo ýkja langt frá. Því verða bíla-íbúarnir í Vatnskassavin heldur hissa þegar frægur kappaksturbíll villist inn í bæinn þeirra með tilheyrandi látum.

Bílar er bráðskemmtileg og fyndin mynd fyrir alla fjölskylduna.

Litabók
Hérna er líka hægt að sækja litabók til að prenta út og lita uppáhaldsbílinn sinn.