Komdu með út í geim!
 



Orkuboltinn í Sjónvarpinu

Orkuboltinn er nýr, sprellfjörugur og skemmtilegur þáttur fyrir alla fjölskylduna í umsjón Höllu hrekkjusvíns. Hún fær orkumikla krakka í heimsókn og leitar meðal annars að Orkubolta Íslands. Í þáttunum verður einnig Orkuþrautin undir stjórn Magga mjóa. Eins og nafnið bendir til er hér á ferðinni æsispennandi keppni þar sem fjögur lið leiða saman hesta sína og keppa um titilinn Orkumesti landshlutinn.

Þættirnir verða sýndir á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan hálfsjö og endursýndir á laugardags- og sunnudagsmorgnum.

Sjónvarpsþættirnir hefjast í Ríkissjónvarpinu þriðjudaginn 7. október 2003.

Nánari upplýsingar eru á vef Ríkisútvarpsins.