|
Aha sei sei já já
Eiga hanar nokkurn tímann egg? Nei nei. Eru hljóðin í kúnum kölluð
hnegg? Nei nei. Eru Breiðhyltingar breiðleitir og Rangæingar
rangeygðir? Nei nei, sei sei, já já.
Eru kisur alveg hárrauðar? Nei nei. Eru fermingar í febrúar? Nei
nei. Jú, rangt er ykkar svar í svip, því sífellt eru fermd hér
skip. Aha, sei sei, já já.
Hlíða krakkarnir í Hlíðunum Já já. Synda krakkarnir í Sundunum? Já
já. Nei, ekkert barn fer oní dröfn í sundunum við Sundahöfn. Aha, sei
sei, já já.
Eru Framararnir framsettir? Nei nei. Eru KR-ingar köflóttir? Nei
nei. Valsmenn, fundu þeir upp vals, er geimskip geymt í koti karls? Nei
nei , sei sei, já já.
Byrjar jólahátíð klukkan sex? Já já. Er til staur sem borðar
matarkex? Nei nei. Jú, þekkið ekki þennan gaur þetta er hann
Stekkjastaur Aha, sei sei, já já
Virðist Grýla voða sæt og fríð? Nei nei. Vitiði um dýr sem fylgja ykkur
alla tíð? Nei nei. Jú, þið eruð meiri álfarnir það eru á ykkur
kálfarnir. Aha, sei sei, já já.
Keyra allir lafhægt eins og lús? Nei nei. Hefur ein mús fleiri eyru en
engin mús? Nei nei. Nei, því ein mús hefur eyru tvö, en engin mús hún
hefur sjö! Aha, sei sei, já já.
Rennur Smáralind með lækjarnið? Nei nei Finnast mýs sem kettir líta ei
við? Nei nei Jú, kisa verður varla fús, að veiða og éta
tölvumús! Aha, sei sei, já já, sei sei, já já.
Höfundur lags : Ómar Ragnarsson Höfundur texta : Ómar
Ragnarsson
|
|