Ég segi það satt
Ævintýrin gerast enn eins og þið munuð heyra senn. Ég var á gangi oní bæ
einn .. en það var alltí læ.
Þá sá ég hreindýr þjóta hjá þau mig næstum klesstu á en Jólasveinninn
greip í mig og leyfði mér að sitja fyrir framan sig.
Ég segi það satt við fórum svo hratt við þutum af stað og ég næstum
því datt.
Þessu varla trúum við varstu nú að segja satt. Hættið þessu hlustið
þið, bíðið, þar til þið heyrið hvað gerðist næst sko!
Hann vildi stoppa sjoppu í og gefa mér alls konar gotterí. Sleikjóinn
var heillandi rauður hvítur og glansandi.
Ég var á fullu að éta hann þegar að sleðinn til hliðar rann ég
ruglaðist af hreindýra hnegginu og festi sleikjóinn í skegginu.
Ég segi það satt ég fór svo hratt er við þutum af stað að hann á mig
datt.
Þessu varla trúum við varstu nú að segja satt. Hættið þessu hlustið
þið .. bíðið, þar til þið heyrið hvað gerðist næst sko!
Skeggið ónýtt .. mér var kalt. Gjafir fljúgandi út um allt. Ég reyndi’
að stýra sleðanum með Sigga, hangandi á honum.
Búðargluggar þutu hjá bílar okkur flautuðu á. Ég reyndi’ að tosa í
taumana en tætti’í sundur saumana .... sko á jólasveinabuxunum.
Ég segi það satt við fórum svo hratt við þutum af stað og ég næstum
því datt.
Þessu varla trúum við varstu nú að segja satt. Hættið þessu hlustið þið
.. bíðið, þar til þið heyrið hvað gerðist næst.
Þessu varla trúum við varstu nú að segja satt. Þessu varla trúum
við varstu nú að segja satt.
Höfundur lags : Máni Svavarsson Höfundur texta : Máni
Svavarsson
|